
Sæl öll
Fyrir nokkru síðan rambaði ég inn á vef sem fyrrum starfsmenn SBS á Selfossi halda úti. Þar er sögu gamla fyrirtækisins sem þau unnu hjá haldið á lofti, sögur sagðar og myndir skoðaðar. Einhverstaðar á síðunni lagði einhver til að fleiri slíkar síður yrðu stofnaðar utan um önnur rútufyrirtæki og mér finnst það góð hugmynd.
Það sem vantar frá ykkur sem lesið þetta eru myndir (og ekki síður af fólki heldur en bílum), sögur bæði af ævintýrum og daglega lífinu, nöfn starfsmanna, sérstaklega föstu starfsmennina og síðan er nauðsynlegt að einhver sem þekkir vel til skrifi sögu fyrirtækisins í grófum dráttum.
Hjá þessum fyrirtækjum eyddu sumir meirihluta starfsævinnar og aðrir besta hlutanum, Vinnan var þannig að menn lentu í ævintýrum og svaðilförum, þetta var einstaka sinnum hættulegt, oft erfitt, en oftast skemmtilegt og spennandi. Og félagsskapurinn var góður. Menn kynntust mikið af fólki sem stundum urðu ævilangir vinir og félagar og sumir hittu jafnvel verðandi maka sinn í ferð með Vestfjarðaleiðarútu.
Er þetta ekki þess virði að halda því á lofti? Það finnst mér að minnsta kosti.
Ef þið viljið hafa samband við mig þá er netfangið: einar (hjá) ulfur.net
Einar Steinsson
Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 23230
Samtals gestir: 4557
Tölur uppfærðar: 2.9.2010 19:59:44
